Dásamlegu diskarnir úr Picnic línunni. Koma 4 saman í pakka.
Vörurnar eru gerðar úr akrýlplasti og hafa yfir sér fágað yfirbragð en kristalsmynstur er skorið í þær. Hægt er að nota vörurnar bæði innan- sem utandyra og eru þær bæði léttar og sterkar svo hættan á að þær brotni er töluvert minni en þegar um gler er að ræða.
Efni: Akrýl Plast
Þvermál: 20 cm
Aðeins handþvottur
Sagaform var stofnað fyrir meira en 25 árum síðan á Saga Street í Boras í Svíþjóð. Frá fyrsta degi hefur verkefni þeirra verið að skapa góð og kærleiksrík sambönd með því að bjóða upp á vandlega valdar, og vel hannaðar vörur á góðu verði. Með samstarfi við þekkta hönnuði skapar Sagaform dýrmætar vörur.