Upplýsingar

Búðin Decor opnaði í desember 2018. Netfang: budindecor@budindecor.is

Þegar þú leggur inn pöntun hjá budindecor.is samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

Afgreiðsla og afhending pantana

Afgreiðslutími pantana er að jafnaði 1-4 virkir dagar. Allar pantanir eru sendar upp að dyrum eða á næsta pósthús. Hægt er að velja um sendingarmáta með Íslandspósti eða Dropp. Búðin Decor ber ekki ábyrgð á því ef sendingaraðili sendir ekki heim að dyrum. Kaupandi ber ábyrgð á að gefa upp rétt heimilisfang við pöntun. 

 

Um pantanir sem eru sendar með Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Búðin ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Búðinni til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.

Greiðslumöguleikar.

Búðin Decor býður upp á val um að greiða með debetkorti, kreditkorti eða Netgíró. Allar kortagreiðslur fara í gegnum örugga greiðslusíðu Borgunar, Búðin Decor tekur því hvorki við né geymir kortaupplýsingar.

Netgíró býður upp á kortalaus viðskipti á netinu. Til að greiða með Netgíró þarftu að vera með virkan aðgang, hægt er að nýskrá sig á vefsíðu Netgíró. Þegar þú greiðir með Netgíró þarftu aðeins að slá inn kennitölu og lykilorð og þá er pöntunin frágengin. Reikningur vegna kaupanna kemur í heimabankann með gjalddaga eftir 14 daga og er hann vaxtalaus. Einnig býður Netgíró upp á raðgreiðslur vegna vörukaupa og er mögulegt að dreifa því á 2-12 mánuði (fer eftir upphæð kaupanna). 

Verð

Búðin Dekor áskilur sér rétt til að breyta verði án fyrirvara og að hætta við pantanir ef verð vörunnar er rangt skráð í vefverslun. Öll verð í vefverslun eru gefin upp með virðisaukaskatti en sendingakostnaður bætist við áður en greiðsla fer fram. Sendingarkostnaður af húsgögnum greiðist af viðtakanda. Ef varan er ekki til á lager látum við þig vita um væntanlegan komutíma eða endurgreiðum sé þess óskað.

Skilafrestur og endurgreiðsluréttur

Vörum er hægt að skila innan 14 daga eða fá henni skipt í aðra vöru eða fá hana endurgreidda með sama máta og greitt var fyrir hana, gegn framvísun greiðslukvittunar. Athugið að ef greitt var fyrir vöruna með kreditkorti þá er eingöngu endurgreitt á sama kort. Sé greitt fyrir vöruna með Netgíró er annað hvort hægt að fá inneign eða fella niður kröfuna í heimabanka sé hún ógreidd. Ef vara hefur verið gefin að gjöf þá er eingöngu boðið upp á vöruskipti eða inneignarnótu, ekki endurgreiðslu. Skilyrði er að koma með kvittun við vöruskil eða skipti.

Framvísa þarf kvittun við vöruskil eða vöruskipti. Vöru fæst eingöngu skilað eða skipt sé hún ónotuð og í upprunalegum óskemmdum umbúðum og ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við kaupverð hennar samkvæmt kvittun. Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur.

Útsöluvöru fæst hvorki skipt né skilað.

Sendingarkostnaður fæst ekki endurgreiddur og kaupandi ber ábyrgð á sendingunni þar til hún hefur borist Búðin Decor.

Gölluð vara

Komi upp galli í vöru er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir, eða endurgreiðum sé þess óskað. Vinsamlegast sendið okkur tölvupóst á budindecor@budindecor.is með upplýsingum um galla vörunnar. 

 Trúnaður (Öryggisskilmálar)

Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila, nema svo beri skylda til gagnvart lögum. Allir sem versla hjá okkur eru skráðir sjálfkrafa á póstlistann okkar.

Fyrirvari

Öll ákvæði skilmálanna hér að ofan ber að túlka í samræmi við íslensk lög. Komi upp ágreiningur milli aðila verður slíkur ágreiningur einungis leystur fyrir íslenskum dómstólum.


Ertu með fyrirspurn eða ábendingu? Sendu okkur póst á budindecor@budindecor.is