Dásamlegir matardiskar úr Picnic línunni.
Vörurnar eru gerðar úr akrýlplasti og hafa yfir sér fágað yfirbragð en kristalsmynstur er skorið í þær. Hægt er að nota vörurnar bæði innan- sem utandyra og eru þær bæði léttar og sterkar svo hættan á að þær brotni er töluvert minni en þegar um gler er að ræða.
Sagaform var stofnað fyrir meira en 25 árum síðan á Saga Street í Boras í Svíþjóð. Frá fyrsta degi hefur verkefni þeirra verið að skapa góð og kærleiksrík sambönd með því að bjóða upp á vandlega valdar, og vel hannaðar vörur á góðu verði. Með samstarfi við þekkta hönnuði skapar Sagaform dýrmætar vörur.
Ekki er mælt með því að setja Picknick vörurnar í uppþvottavél.
Stærð: 26 cm
Efni: Akrýl Plast